Sælir lesendur góðir nær og fjær.
Núna er maður enn og aftur kominn í siðfræði sem er skrítnasta
og fáránlegasta fag held ég í heimi. Þess vegna er ég að skrifa
núna því ég get ekki hlusta á þessa vitleysu. Nenni ekki að tala
meira um það en allavega var dagurinn í gær ekki nógu
skemmtilegur þar sem mín heitt elskaða fór í miðdepil jarðar á
eftir Hólminum en hún fór á Tálknafjörð í gær og ég sé hana ekki
fyrr en 24. apríl. Svo eru strákarnir búnir að vera stríða mér
og spyrja mig hvort ég hafi farið að grenja og svoleiðis sem mér
finnst ekki réttlátt gagnvart tilfinningum mínum. En ég
þrauka.
Enn og aftur er ég undir mikilli
pressu að skrifa og enn og aftur frá Haraldi Bærings heimsliðsmanni
í handbolta. Fyrir þá sem ekki vita hver Halli er , þá heitir hann
í Raun Haraldur Þorvarðarson og er hann leikmaður Fram. Nafnið
Bæringsson náði hann í með því að vera frákastakóngur í 2. deild
karla í körfu 2 ár í röð með 23 fráköst að meðaltali í leik og
nafnið kemur auðvitað af sjálfum Hlyni Bæringingssyni.... hann lék
einnig handbolta í Þýskalandi þar sem hann var atvinnumaður og
gerði hann garðinn frægan t.d. Dusseldorf og Straesund
og er hann að
mínu besti handboltamaðurinn á Íslandi og sá
myndalegasti...... og ef þið sjáið mig einhvern tímann skrifa
um einhvern að nafni Halli Bærings eða Svaninn eða Iron Man
eða ladykiller eða Tarfurinn eða Fyriliðinn eða Bacon Boy eða
Bacon eating machine þá erum við að tala um sama manninn.
Einnig má nefna að hann er nánast sá eini sem commentar á
alla mína pistla þannig að hann getur ekki farið fram
hjá ykkur. Einnig getið séð hann með því að fara einfaldlega
á Fram leik og tekið þátt í Fram Söngnum sem þeir kalla Halla
og það hljóðar svo " það er aðeins einn halli bærings, það er
aðeins einn hhaalliiiiiiii bærings, það er aðeins einn halli
bærings.... "
Núna er bara stefna að þrauka út
tímann áður en ég reyni að borða mig til dauða .......
Kveð
Jörgen