Fóðrunarstarfsemi Kvikyndanna
20.10.2006 21:41:50 / Jörgensen

Hættur !

sorry fólk, nenni alls ekki að skrfa á þessa síðu. þið verðið að afsaka. lifið heil og þakka fyrir mig kveðja Jörgensen

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 13:39:15 / Jörgensen

ellefti í Gústa

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær... í dag er næst síðasti vinnudagurinn á Tálknafyrði þetta árið allavega og það eru nákvæmlega 10 einstaklingar búnir að koma í sund á fyrstu 4 tímum opnunarinnar sem er alveg frábært. En það gerir það að verkum að ég get hangið á netinu og gert nákvæmlega ekki neitt sem er einnig mjög gott. Í gær var svo síðast kvöldmótið í frjálsum og var þá sumarþjálfun okkar formlega lokið. Fyrir tveimur vikum síðast gerðust skemmtilegir hlutir. Já Kjartan Ólafsson a.k.a K.Ó, nock out, slátrið, Prinsinn, göfugi villimaðurinn, upphandleggjaundrið, ladykillerinn kom í fjörðinn að heilsa upp á kall og kellu. Þetta var frábær helgi vægast sagt og stóð slátrið sig með eindæmum. Við félagarnir fórum á látrabjarg þar sem Jörgensen sýndi honum hinu ýmsa fuglategundir sem hann hafði aldrei séð áður t.d. lunda (Puffin), Ritu og fíl svo að eitthvað séð nefnt. Það vill nefnilega til að Knock outið kemur úr bænum og þekkir ekki þetta sveitalíf eins og hann vill gjarnan orða það svo að ég tók mig til og sýndi honum ýmislegt. Svo fórum við í golf. Hann hafði oft séð golf spilað því það eru nokkrir vellir í kringum stórreykjavíkursvæðið. Það fór samt ekki vel á stað því þegar komið var á völlinn uppgötvaði Prinsinn að hann hafði gleymt öllum golfboltunum í bænum Jörgeninum til mikillar ánægju. En við fengum lánaða nokkra bolta hjá kunningja mínum og Kjartan sagðist ætla borga honum þetta með 50% vöxtum en afborganirnar yrði skipt niður í 12 tímabil, menn sættust á þetta og endaði þetta allt saman vel. Svo gerðust svolítið hræðandi atburði, þegar við vorum að spjalla saman í rólegheitunum byrjaði Kjartan að skjálfa, og varð hann náfölur í framan. Við vissum ekkert hvað við áttum að gera því hann var farinn að muldra, froðufella og rangkvölfa augunum. Eftir 3 mín. náðum við að skilja það sem hann sagði og þá heyrðist með skjálfandi röddu RREEEYYYKJJJAAAVVVÍÍÍÍKKK,,, BBBÍÍÍÍÓÓÓÓ og svo í lokin SSSUUBBWWAAYY.... og þá mundi ég eftir því sem hann sagði við mig fyrst þegar við kynntumst að hann fengi fráhvarfseinkenni þegar hann væri lengi frá miðborginni þannig að við róuðumst og þá róaðist hann. Þegar Jörgensen magazine spjallaði við upphandleggjaundrið sagði hann að líklegast skýringin væri sú að hann hefði verið lengi að keyra á malarvegum og langt hefði verið síðan hann fór á almennilega mynd í bío, en ekkert þyrfti að óttast því hann ætti þyrlu sem gæti náð í hann ef hann fengi einkennin... að lokum kvöddust félagarnir og hélt hann heim á leið í menninguna.. takk fyrir heimsóknina kallinn minn:) Jörgensen kveður

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 12:43:52 / Jörgensen

He is a life!!!!!

Jæja kallinn farinn að blogga aftur eftir langan dvala. Ég verð nú samt að segja að ég reyndi að blogg fyrir mánuði síðan og aftur fyrir viku en í bæði skiptin þegar ég var að verða búinn með pistilinn varð annaðhvort rafmagnslaust eða snúran tekin úr sambandi (batterýið í tölvunni er nefnilega dautt)... en allavega það er mikið búið að gerast síðan ég skrifaði síðast t.d. þetta: - fórum í útskriftarferð til kanarý sem var vangefið gaman - útskrifaðist úr kennó og hélt veislu og tilheyrandi - fór á Tálknafjörð til þess að vinna og þjálfa og er það bara búið að vera fínt - hættum við að fá okkur blessaða köttinn og það varð til þess að hann var sendur í sveitina (lóað). - Fengum okkur hund í staðinn sem heitir Vaskur en á mínu heimili er hann jafnan kallaður Ræsið...... smá húmor - Húsið mitt er ekki ennþá orðið klárt og ég veit ekki hvenær það verðu til en það kemur vonandi að því einhvern tímann Þar hafið þið það... þetta er það helsta sem ég man eftir sem hefur gerst í sumar. Kannski ekkert voðalega mikið. Í næstu viku flytjum við svo aftur í hólminn (hólmurinn heillar) er ég farinn að heyra í honum kalla og segja mér að koma heim.. við eigum að mæta í næstu viku í skólann til þess að fara að kenna. Þetta verður svolítið skrítið að fara ekki í skólann á þessum tíma eins og maður er vanur að gera og fara að vinna í staðinn. Svo er kallinn líka að fara vinna í líkamsræktarstöðinni í hólminum og ef þið þurfið að komast í form þá hringið þið í síma BUFF sem tekur niður pantanir.. Já svo gerðist það í gær að kallinn ákvað að taka hárið af sér aftur og það byrjaði nú ekki vel því klippan sem ég keypti í fríhöfninni og átti að vera svo góð til þess að klippa hár virkaði ekki og kom þá í ljós að hún var einungis fyrir skeggsnyrtingu (það kom sér vel þar sem ég er svo kafloðinn í smettinu), Damn you Dúfa and Hilmar, svo að ég fór og náði í vélina til Nóa (afi hennar Fríðu) og fékk vélina hans. Þegar búið var að klippa það mesta og byrja átti að nota rakvélina kom það í ljós að hún var heldur ekki nógu góð þar sem hún hafði ekki feldinn af.. þannig að það var hringt í 112 og Hróðný svaraði og bauðst til að redda þessu. Þegar yfir á Patreksfjörðinn var komið og komið var á stéttina fyrir framan íbúðina tók þessi mikli hlátur á móti okkur og var hún þá að hlæja að mér, sem mér fannst ekki fyndið. En að lokum tókst þetta og kallinn er orðinn burstaklipptur aftur sem er góð tilfinning... Kveð í bili, vonandi verður ekki eins löng bið í næsta pistil eins og síðast, og þá er aldrei að vita að birt verði viðal við David nokkurn Hasselhoff sem Jörgensen magazine tók af honum fyrir nokkrum dögum síðan Jörgensen kveður

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 22:53:45 / Jörgensen

14. mai

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Nú er strákurinn kominn í fjörðinn fallega þ.e. á Tálknafjörð. Búið að vera bongoblíða síðan ég kom og er fólk að tala um að þetta verði besta sumar í sögu Tálknafjarðar, vonandi. Það er algjör lúxus að vera búinn með skólann, maður veit eiginlega ekk hvað skal gera, ég var næstum því kominn í glósurnar úr íþróttastjórnun og réði ekkert við mig en betur fer var ég tæklaður af Fríðu sem kom hlaupandi og tók tveggja fótar tæklingu í hnjáskeljarnar á mér. Eins gott..... þó svo að það sé yndislegt að vera búinn með skólann og með námið á maður eftir að sakna allra félaganna úr bekknum. Þetta eru búin að vera brilliant 3 ár og þori ég að segja að þetta sé besti hópur í sögu skólans og allra skóla í heiminunm. Það er vonandi að það verði nóg um hittinginn á næstu árum svo maður missi ekki touchid við liðið.. ég vil þakka Törfum og Jötlum fyrir góða tíma og hlakka ég til að hitta mannskapinn í leifstöð eftir viku......

   Á morgun byrjar svo vinnan en ég á víst að mála eitthvað í sundlauginni og svo er kvöldvakt um kvöldið. Ég mátaði einmitt rauðu sundvarðarskýluna, því maður verður að vera viss hvort maður passi ennþá í hana og einnig tók rauða flotholtið úr skápnum og dustaði af því rykið. Svo eftir matinn tók ég mig til og hringdi í gamlan félaga til Þýskalands eða Mitch buchannon bara til þess að heyra í honum hljóðið. Hann sagði einmitt að hann hefði bjargað 3 einstaklingum þennan dag, framleitt heila mynd, drepið hákarl, og verið tilnefdur til friðarverðlauna Nópels. Hann sagði einnig að nú væru bringuhárin á kassanum væru komin yfir kílóið þannig að hann gæti ekki verið ánægðari. Kannski ég hringi í hann í næstu viku til þess að athuga hvort hann kæmi bara ekki með okkur til Kanarí, hann er einmitt svo mikill flippari og mikill stuðkall...

Jæja kominn tími á svefn.....

Kveð Jörgensen


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 16:42:10 / Jörgensen

11. mai, Búinn með skólann

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Já Jörgeninn er sestur við tölvuna og farinn að skrifa á ný eftir sma pásu. Búinn að vera gera lokaritgerð ásamt því að vera í prófum. Ég fór í þrjú stykki og það gekk bara fínt og það þýðir að ég er BÚINN með skólann!!!!!!!!!! Fyrir þau sem ekki eru búin þá segir ég þetta ,,HALDIÐ ÁFRAM AÐ LÆRA”!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ég skrifa meira næst, er að fara að sofa og horfa á Batman.. Jörgensen

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 19:34:11 / Jörgensen

24. apríl

Sælir lesendur góðir nær og fjær.. er búinn að vera latur við skriftir enda er búið að vera frekar mikið að gera, fyrst í lokaritgerð sem er í það mund að klárast og svo taka blessuðu prófin sem maður tekur alltaf fagnandi og með opnum örmum.. þannig að það verður lítið um skriftir næstu daga en maður veit aldrei nema maður stelist í tölvu apparatið og hendi kannski einum léttum pistli inn en ég lofa engu.... ætla að uppdeita ykkur yfir það sem ég hef verið að gera síðustu vikur

- vinna, vinna vinna í lokaritgerð, rosa rosa rosa gaman

- fór í páskafrí sem var fínt, skellti mér heim í hólm þar sem ég gluggaði á höllina mína, fór einnig á ball með tje joe guy band sem var gríðarleg skemmtun. Hitti einnig erfingjann hans hilmars og auðvitað hennar Guðrúnar líka.. hlakka til að fá að kenna honum öllu hallærislegu frasana okkar sem við höfum verið með síðan við byrjuðum á skaganum.

-fríða kíkti yfir helgina og hafði ég ekki séð hana í 2 vikur en stutt var gamanið því hún er horfin aftur.. hún kemur svo aftir þegar prófin fara að byrja.

- lærdómur, klára lokaritgerð, fór í kynningarferð í Össur, fór í myndatöku með bekknum,,,

-er núna a vatninu og er að fara að horfa á office...

kveð Jörgensen

p.s. kvikmyndaspurning: if he dies, he dies!!!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 13:27:43 / Jörgensen

Haraldur Bærings #1

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Núna er maður enn og aftur kominn í siðfræði sem er skrítnasta og fáránlegasta fag held ég í heimi. Þess vegna er ég að skrifa núna því ég get ekki hlusta á þessa vitleysu. Nenni ekki að tala meira um það en allavega var dagurinn í gær ekki nógu skemmtilegur þar sem mín heitt elskaða fór í miðdepil jarðar á eftir Hólminum en hún fór á Tálknafjörð í gær og ég sé hana ekki fyrr en 24. apríl. Svo eru strákarnir búnir að vera stríða mér og spyrja mig hvort ég hafi farið að grenja og svoleiðis sem mér finnst ekki réttlátt gagnvart tilfinningum mínum. En ég þrauka.

Enn og aftur er ég undir mikilli pressu að skrifa og enn og aftur frá Haraldi Bærings heimsliðsmanni í handbolta. Fyrir þá sem ekki vita hver Halli er , þá heitir hann í Raun Haraldur Þorvarðarson og er hann leikmaður Fram. Nafnið Bæringsson náði hann í með því að vera frákastakóngur í 2. deild karla í körfu 2 ár í röð með 23 fráköst að meðaltali í leik og nafnið kemur auðvitað af sjálfum Hlyni Bæringingssyni.... hann lék einnig handbolta í Þýskalandi þar sem hann var atvinnumaður og gerði hann garðinn frægan t.d. Dusseldorf og Straesund  og er hann að mínu besti handboltamaðurinn á Íslandi og sá myndalegasti...... og ef þið sjáið mig einhvern tímann skrifa um einhvern að nafni Halli Bærings eða Svaninn eða Iron Man eða ladykiller eða Tarfurinn eða Fyriliðinn eða Bacon Boy eða Bacon eating machine þá erum við að tala um sama manninn. Einnig má nefna að hann er nánast sá eini sem commentar á alla mína pistla þannig að hann getur ekki farið fram hjá ykkur. Einnig getið séð hann með því að fara einfaldlega á Fram leik og tekið þátt í Fram Söngnum sem þeir kalla Halla og það hljóðar svo " það er aðeins einn halli bærings, það er aðeins einn hhaalliiiiiiii bærings, það er aðeins einn halli bærings.... "

Núna er bara stefna að þrauka út tímann áður en ég reyni að borða mig til dauða .......

Kveð Jörgen

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 12:13:07 / Jörgensen

2. apríl

Góðan dag lesendur góðir. Dagurinn í gær var bara mjög svo góður. Hann byrjaði með því að fara í dans klukkan 9 og átti að hita sig aðeins upp fyrir prófið sem byrjaði klukkan 11. prófið gekk vel enda var ekki að búast við öðru af sjálfum Róbert Travolta Jackson, ég var samt smá fúll yfir því að mega ekki taka show þar sem ég yrði einn á gólfinu. Ég hafði hugsað mér að taka heimsins lengsta moonwalk en það átti að standa yfir í 4 klukkustundir eða 43 km moonwalk sem er vel hægt að framkvæma en auðvitað sagði kennarinn NEI, Sagði að ég gæti það ekki en ég hló bara að honum og snýtti mér á hann. Sögur fara af því að kallinn fái 10 + + + besti nemandi sem ég hef haft en það verður bara að koma í ljós seinna.

Eftir Próf fórum við í bæinn þar sem við tókum máltíð hjá Fannari og Ólu og má segja að maturinn hafi verið hrein snilld. Um var að ræða stektar kjúklingabringur með steiktu grænmeti, kartöflum og fleira. Svo eftir risamáltíðina tók við át á franskri súkkulaðiköku sem Jörgeninn slafraði auðvitað létt. Eftir átið var maður nær dauða en lífi og reyndi fannarinn að halda í mér lífi með því að hella í mig bjór, sandgríu og einvherju öðru sulli. Kvöldið var snilld og þakka ég þeim allt saman.........

            Ég gleymdi að segja frá því að við erum kannski að fá okkur kött,, já þið heyrðuð rétt KÖTT,, það er ekki á hverjum degi sem Jörgeninn kemur við ketti þar sem hann hefur nánast alla sína tíð hatað ketti en þessi er undantekning. Þessi er snillingur, hann er að vísu nánast blindur og smá heyrnalaus, hann er með ca 4 cm langt skott, og svo halda fyrri eigendur að hann búi yfir of mörgum litningum eða of fáum þ.e. eitthvað fatlaður. Þannig að það má segja að hann sé aðeins frábrugðinn þeim köttum sem við eigum að venjast og þess vegna vil ég eiga hann. Það kemur í ljós á næstu dögum hvernig þau mál fara en dómnefndin er eitthvað efins þ.e. Fríða  

Later

Jörgensen


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 11:02:13 / Jörgensen

30. mars

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Í dag er merkur dagur hjá henni fríðu minni (og celine dion) því hún er hvorki meira né minna orðin 24 ára gömul og óska ég henni til hamingju að verða aftur orðin eldri en ég. Það þýðir að hún er aftur komin í bílstjórasætið og ræður öllu aftur. Fyrir þá sem ekki vita þá varð ég 23 á laugardaginn síðasta (fyrir ykkur sem gleymdu) og síðustu 5 daga hef ég fengið að ráða öllu t.d. hvað skuli versla í matinn, hvenær eigi að setja í þvottavél, hvenær eigi að læra ofl. En núna er það búið. .....

Hilmar eða Tilli eða Hillario eða Tillarío eða Ron Jeramy eða Siggi Júll  eins og hann er gjarnan nefndur hafði kvikmyndagetraun síðastapistils réttan og hlýtur hann ekkert í verðlaun þar sem hann var einn af þeim sem gleymdu afmælinu mínu, að vísu kom kveðjan 2 dögum seinna en þar sem ég er ekki hlynntur “”betra seint en aldrei” máltækinu varð ég og er enn fúllJ.

Laugdæla stelpur unnu svo sigur á liðið hrunamanna með tæpum 30 stigum og eru þær þar með orðnar öruggar með 3 sætið í deildinni sem þær mega vera ánægðar með þann árangur. Ég sá hins vega í fyrsta sinn áhorfendur vera rekna út úr húsi en tveir ólátabelgir hlupu inn á völlinn og ætluðu að reyna ráðast á Dúfu sem hljóp þá að vísu af sér. Ég vona að ég þurfi aldrei aftur að verða vitni að slíku atferli aftur.

Kveð að sinni : Jörgensen

 

 



Kvikmyndagetraun: hei Dirty D, still dirty i can see..... úr hvað mynd er þetta?    


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 10:38:32 / Jörgensen

28 mars.

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Ég hef verið undir mikilli pressu undanfarið frá Halla Bærings um að fara skrifa nokkur orð. Það er kannski kominn tími til þar sem ég hef ekki skrifa í 3 vikur. En allavega það nýjasta í fréttum hjá kallinum er það að hann er aftur orðinn stuttklipptur eða snoðaður sem er góð tilfinning. Það var KÓ eða knock out eða slátrið eins og hann vill kalla sig sem sá um afgreiðsluna á fyrirbærinu. Slátrið sagði í viðtali við Jörgensen magazine að hann hefði aldrei á sinni langri lífsleið séð annað eins hár, slíkt þykkt hár hefur ekki sést síðan Valli fór í stólinn hjá honum. Hann sagði einnig að hann væri ánægður með árangurinn og að þetta hefði verið góð æfing fyrir world klippers cup sem verður haldið í sumar.

Á eftir er svo hin skemmtilega siðfræði sem er orðin geysivinsæl á meðal nemenda og fór að hlakka mikið í mönnum eftir þessum tíma strax 3 mínútum eftir að síðasta tíma lauk. Fólk er farið að massera um göturnar og öskra “Siðfræði mumber one og ég vil kjötið mitt well done” hvað sem það nú þýðir. Þannig að það er augljóslega mikil eftirvænting, það verður gaman að vita hvað málefni dagsins verður, en það laumaði því einhver að mér að það yrði rætt um hvort það sé siðferðislega rétt að klóra sér í pungnum á undan rassi þótt manni hafi klæjað áður í rassinn og verður gaman að sjá hvernig þau málefni enda. Ég vona að þetta sé nóg halli minn annars lætur þú mig bara vita. p.s. o´doyle rules , úr hvað mynd er þetta??? Örugglega vitlaust skrifað kveð Jörgensen


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 15:00:52 / Jörgensen

8.mars

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Þessa stundina ligg ég upp í rúmi  með fæturna upp í loft og geri nákvæmlega ekki neitt. Reyndar er ég að horfa á the mask sem er alltaf öflug. Eins og þið hafið lesið þá fór ég í aðgerð í gær sem gekk bara nokkuð vel held ég. Læknirinn talaði um að ég væri kominn á fullt eftir 6-8 vikur. Vonandi gengur það upp.

            Á sunnudaginn var spiluðu stelpurnar á móti skallagrím í ljónagryfjunni í Borganesi og má segja að leikurinn hafi verið smá spennandi. Hann fór í framlengingu og unnum við með 2 stigum. Ég held að meðalpúlsinn hjá mér hafi verið 200+.

Á morgun er árshátíð hjá okkur og er planið að fara. Það verður reyndar lítið um dansinn en það er aldrei að vita nema maður dilli aðeins mjöðmum og sýni smá lit. Það er búið að lofa rosa skemmtiatriði á morgun þannig að ég hvet alla sem hafa möguleika á að mæta til að mæta.  

Ætla að hætta að skrifa þar sem ég er svo upptekinn við að gera ekki neitt og kveð í bili.

Jörgensen


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 10:29:48 / Jörgensen

miðvikudagurinn 2. mars

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Núna er mikið búið að gerast síðustu daga og byrja ég á því sem við vorum fengnir í að gera á þriðjudaginn var. En þannig er mál með vexti að 10 einstaklingar (tröll) voru fengnir í vinnu við uppskipun í þorlákshöfn. Þeir hringdu og sögðu ,,hei,, við þurfum 10 tröll sem vinna á við 40 manns ” og auðvitað var hringt í okkur. Þegar við komum á svæðið var jörgenin ásamt sigurði majones sendur niður í lest til þess að stafla frystri loðnu sem var innpökkuð í kassa á bretti sem var svo híft upp.... það má orða það þannig að þetta hafi verið negravinna dauðans. Þarna vorum við í  30 stiga frosti að vinna af okkur hendurnar og bakið í 14 tíma og held ég að ég hafi örugglega lyft ca 6000 kössum um daginn enda er bakið á mér í fínu stuði þessa dagana. En þetta var svo sem ágætt þar sem við fáum vonandi vel borgað fyrir þetta, því var okkur allavega lofað.

Frá öðru merkilegu er að segja að ég fór til bæklunarlæknis í gær (miðvikudag) “LOKSINS” til þess að láta skoða á mér fæturnar (hvað annað) og hann skoðaði mig í ca 2 mín áður en hann sagðist vilja fá mig í aðgerð. Ég á sem sagt að fara í aðgerð á þriðjudaginn næsta og verð frá næstu vikurnar. Þeir ætla sér að skera ca. 4-6 sentímetraskurð á húðina en 30 sentímetra fyrir innan húð eða á bandvefinn og eru þeir að reyna minnka þristinginn  og létta á kvikindunum sem búa þarna undir. Ég er búinn að bíða lengi eftir að komast aftur í aðgerð og má nánast segja að mig hlakki til (en kannski ekki). Þá er þetta þriðja aðgerðin mín tengt fótavandamálunum á innan við einu ári. En það er gaman að þessu.......

 

 



Hugleyðing dagsins: er í raun hægt að vinna af sér einhverja líkamsparta t.d. eins og að vinna af sér bakið eða vinna af sér hendurnar.. t.d. hei mamma, ,, ég er búinn að vinna svo mikið í dag að ég missti hendurnar “ mamma: ,,gott hjá þér sonur, það þýðir að þú hafi unnið fyrir kaupinu þínu” eða eitthvað í þeim dúr.....????

Kveð Jörgen

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 09:55:02 / Jörgensen

23. febrúar

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Í dag er fimmtudagur og aðeins 4 dagar í bolludag og eftirvæntingin er orðin mikil. Þar sem ég var að tala um að vera það sem maður borðar í síðasta pistli verð ég bolla eftir mánudaginn, saltkjöt og baunir á þriðjudag, nammi á miðvikudag. En svona er þetta, hugsa um matarræðið (sérstaklega Halli skinka) og bla bla bla bla. Ég er samt búinn að ákveða að þegar ég kem út úr skólanum og á vinnumarkaðinn ætla ég að vera þessi gaur sem stuðlar að óheilbrigðu líferni þ.e. ekki að vera hreyfa sig, borða beikon og smjör í öll mál og stífla æðar og horfa að meðaltali 14 tíma á dag á sjónvarpið. Þá er einmitt gott ráð að hafa klósettið mjög náægt stofunni, hægt er að stinga í ískápnum í framlengingarsnúru þannig að hann nái inn í stofu og með því fær maður minni hreyfingu og óheilbrigðara líferni. Kannski maður skrifi bók um þetta allt saman “101 aðferð til að verða feitur” eða “hvernig er hægt að gera feitara beikon að feitari beikoni ”. Þetta verður eflaust metsölubók. Í þessum skrifuðu orðum sit ég í tíma þar sem við erum að segja frá okkar reynslu í vettvangsnáminu. Fyrir þau sem ekki vita fórum við í FSU og gekk það fínt en ég nenni ekki að skrifa meira ...... Kveð Jörgen

» 9 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 18:03:40 / Jörgensen

21. febrúar

Sælir lesendur góðir nær og fjær. Í Dag er töffara- og hóruferð og ég kemst ekki. Mér finnst þetta frekar súrt þar sem mig langaði mikið til að fara. Ástæðan fyrir því að ég kemst ekki er sú að ég þarf að þjálfa flokkana mína 2 í kvöld og það er auðvitað enginn á vatninu til þess að leysa mig af. Svo er ég búinn að vera predika yfir meistaraflokknum mínum að nú skuli cutta á alla drykkju (djamm með áfengi) og svoleiðis (spurning hvernig það gangi). Frá körfunni er það að segja að við unnum Ármannþrótt nokkuð örugglega í gær með 28 stigum og spurning er hvort alkahólleysið sé farið að kikka inn ?? en þær spiluð vel og eiga hrós skilið, en núna eru nokkrir leikir eftir og við verðum að vinna alla leikina til þess að ná 3. sætinu. Ég ætla mér engu að síður að mæta kátur á vistina í kvöld þetta blessaða lið mætir á svæðið.....

Hugleiðing dagsins: er maður það sem maður borðar eins og margir vilja segja?,  dæmi: umm mamma er beikon í kvöldmatinn?, mamma: ,, já sonur því ég vil að þú verðir eins beikonið hann faðir þinn....

 

Hvað segið þið??

Kveð Jörgen


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 18:06:51 / Jörgensen

19 febrúar

Sælir lesendur góðir, eyjólfu setti þetta dæmi á mig þannig að núna er bara að lesa….

4 Störf sem ég hef unnið við um ævina:

 blaðberi, málari í slippnum, á sjó og verið bóndi

4 Bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

 The Rock, pootie tang, Rocky myndirnar, don´t be a manice

4 Staðir sem ég hef búið á:

 Stykkishólmi, laugavatn, Tálknafjörður, Akranes

4 Sjónvarpsþættir sem mér líkar:

 24 , CSI, prison brake, smallville, lost

4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

 costa del sol, kanarí, USA, Grænland

4 Síður sem ég skoða daglega:

 Mbl.is, blog.central.is/jorgensen, kki.is, sport.is

4 Bækur sem ég les oft:

 uhhhh, ekki mikið um lestur nema maður neyðist til þess

4 Staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

 Stykkishólmi, Tálknafyrði, USA, Jemen

4 Strákar sem ég skora á að gera þetta:

 Bödda stull, baldvin, kjartan ó þótt hann bloggi ekki, , Darra

Kveð Jörgensen

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3